Miðvikudagur, 11. janúar 2006
Ég tek ofan fyrir hr. Karli Sigurbjörnssyni
Ég vil taka ofan fyrir hr. Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, fyrir að hafa ekki látið Samtökin 78 komast upp með að vaða yfir sig með furðulegri rangtúlkun á orðum hans í viðtali við NFS á dögunum. Í viðtalinu sagði Karl að hjónabandið ætti það inni hjá þjóðinni að því væri ekki kastað á sorphaugana. Samtökin 78 ákváðu að túlka ummæli Karls sem svo að hann teldi að sambönd samkynhneigðra ættu heima á haugunum sem er ekkert annað en grófur útúrsnúningur. Eins og Karl útskýrði skilmerkilega í fréttum NFS sl. laugardag (af einhverjum ástæðum var fréttin ekki birt á Vísir.is þó finna megi hana þar á stafrænu formi), og augljóst ætti að vera hverjum sem er, þá átti hann með orðum sínum við það að ef hjónabandið yrði ekki lengur aðeins skilgreint sem samband karls og konu heldur samband tveggja einstaklinga óháð kyni eins og sumir vilja þá væri búið að breyta algerlega inntaki hugtaksins eins og það hefur verið í aldir og því þar með verið kastað fyrir róða.
Það þarf að ræða málefni samkynhneigðra á málefnalegan og opinn hátt eins og önnur. Það hljóta flestir að geta tekið undir, sama hvaða skoðun þeir annars kunna að hafa á málinu. En það verður svo sannarlega ekki gert með því að snúa gróflega út úr ummælum manna í því skyni, eins og Karl benti réttilega á í fréttum NFS á laugardaginn, að koma í veg fyrir að andstæð sjónarmið heyrist. Sú skoðanakúgun og sá fasismi sem felst í pólitískum rétttrúnaði mun ekki stuðla að neinni lausn í þessum efnum frekar en öðrum. Telji Samtökin 78, sem og aðrir þeir sem styðja þeirra sjónarmið, sig hafa góðan málstað að verja ættu þau varla að hafa áhyggjur af því þó einhverjir viðri önnur sjónarmið í málinu en þau sem samrýmast þeirra eigin. Ef samtökin hins vegar finna hjá sér þörf til að snúa út úr orðum þeirra sem aðrar skoðanir hafa, kalla þá illum nöfnum eða annað þvíumlíkt þá segir það sennilega meira en margt annað um málefnalega stöðu þeirra sem og annarra sem kjósa að brúka slík meðöl.
Það virðist því miður vera svo að það sé alveg sama hvað þeir, sem hafa önnur sjónarhorn á þessi mál en Samtökin 78, segja, allt skal það úthrópað sem fordómar og fáfræði, algerlega óháð því hvort viðkomandi geti fært rök fyrir máli sínu eða ekki. Það er því ekki annað að sjá en að það sé skoðun samtakanna að fordómar og fáfræði séu ekki einmitt það sem hugtökin fela í sér heldur það að hafa ákveðnar skoðanir á málefnum samkynhneigðra og aðrar ekki. Slík misnotkun á grafalvarlegum hugtökum í pólitískum tilgangi er einungis til þess fallin að grafa undan alvarleika þeirra í hugum fólks og ber að fordæma, sama hver gerist sekur um slíkt.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturg(a)hi.is
Meginflokkur: Annað | Aukaflokkur: Gísli Freyr | Breytt 27.4.2007 kl. 23:35 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004