Leita í fréttum mbl.is

Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir

f3b7717417d7d018Það er alveg ótrúlegt til þess að hugsa að Jón Baldvin Hannibalsson hafi ekki hafa sagt eitt aukatekið orð um það við einn eða neinn að síminn á skrifstofunni hans hafi verið hleraður þegar hann var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar 1991-1995 eins og hann vill meina. Hvers vegna að minnast á þetta núna? Það er að sjálfsögðu aðeins tilviljun að það er gert í aðdraganda þingkosninga...

Jón Baldvin byggir fullyrðingar sínar á því að einhver ónafngreindur tæknimaður hafi staðfest fyrir sig að síminn hans væri hleraður. Gott og vel, hvernig væri að gefa upp hver þessi eina heimild Jóns er fyrir þessum alvarlegu ásökunum? Nei, það fæst ekki gefið upp. Og í stað þess að nefna þetta við nokkurn mann fyrr en nú ákvað Jón Baldvin s.s. bara að sitja sem ráðherra til ársins 1995 vitandi að hann væri með hleraðan síma - samkvæmt hans eigin orðum!

Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir.

Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturg(a)hi.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband