Mánudagur, 21. nóvember 2005
Mánudagspósturinn 21. nóvember 2005
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, segir að Alfreð Þorsteinsson hafi verið ráðinn sem framkvæmdastjóri um byggingu nýs sjúkrahúss vegna reynslu í að stýra byggingaframkvæmdum. Hrókeringar innan Framsóknarflokksins komi þar málum ekkert við, en Alfreð hefur sem kunnugt er verið oddviti framsóknarmanna í Reykjavík á undanförnum árum og átt stóran þátt í setja borgina nánast á hausinn í gegnum R-listasamstarfið og margfalda skuldir hennar. Hann hefur sömuleiðis tekið virkan þátt í því að hækka álögur á borgarbúa upp úr öllu valdi og á allan "heiðurinn" af því að hækka útgjöld reykvískra heimila vegna orkukaupa trekk í trekk sem stjórnarformaður Orkuveitunnar.
Og nú á Alfreð að sjá um að byggja nýtt sjúkrahús vegna þess að framsóknarmenn vilja eðlilega losna við hann sem oddvita sinn í Reykjavík. Alfreð beitti sér einmitt fyrir byggingu nýrra höfuðstöðva Orkuveitunnar sem fóru langt fram úr öllum kostnaðaráætlunum og rúmlega það. Vel hefur verið gert grein fyrir því ævintýri, eða öllu heldur martröð, bæði á síðum Morgunblaðsins og á því ágæta vefriti Andríki.is. Jón Kristjánsson segir í viðtali við NFS fréttastofuna í dag að ástæðan fyrir skipun Alfreðs sé einnig sú að hann hafi frétt að sá síðarnefndi hafi viljað losna út úr pólitík. Jájá, bíddu hver hélt honum þar? Var honum haldið þar nauðugum?
Reyndar er það nú svo að auðvitað var aðeins um að ræða leið forystu Framsóknarflokksins til að losna við Alfreð úr borginni. Skoðanakannanir í borginni hafa ekki beint verið upplífgandi fyrir framsóknarmenn og það verður sennilega seint sagt að Alfreð hafi mikinn kjörþokka. lýk þessu annars með því að benda á snilldar nálgun þeirra Baggalútsmanna á þessu máli eins og þeim einum er lagið.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturg(a)hi.is
Breytt 6.10.2006 kl. 13:19 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004