Miðvikudagur, 22. mars 2006
Er þetta eðlilegt?
Nú hafa Hollendingar tekið aðlögun innflytjenda föstum tökum. Það á heldur betur að samlaga fólk sem flytja á til landsins að evrópskri menningu. Hvernig fara þeir að því? Jú, þeir láta umsækjendur kaupa og horfa á erótíska dvd-mynd með berbjósta konum og fáklæddum leðurhommum. Fyrir þetta þarf umsækjandinn að greiða 350 evrur, sem hann fær ekki endurgreiddar, falli hann á prófinu, auk þess sem hann þarf að kaupa myndirnar á geisladiski ásamt myndabók með ósæmilegu myndefni. Þetta er víst nauðsynlegt til að undirbúa fólkið undir lífið í Hollandi.
Fólk sem kemur frá evrópska efnahagssvæðinu þarf að sjálfsögðu ekki að gangast undir prófið, enda þarf ekki að aðlaga það að holenskri menningu, þar sem uppruna lönd þessa fólks eru meira og minna öll kominn jafn langt og Holland í evrópskri smekkleysu.
Tökum Ísland sem dæmi:
Á hverjum degi geng ég framhjá plaggati nokkru í andyrinu á Háskólanum á Akureyri. Hálf nakin kona liggur þar á bakinu og horfir biðjandi augum á vegfarendur. Fyrir neðan stendur fuck me. Pabbi, mamma og börnin horfa saman á ungar konur keppa í því hver sé sætust í bikiní. Keppnin heitir Ungfrú Ísland. Hægt er að horfa á ókeypis myndbönd í ólæstri dagskrá af stúlkum í lágmarksklæðnaði dilla rassinum og barminum með seiðandi hætti í Ríkissjónvarpinu, Skjá einum og Sirkus, meðan beðið er eftir því að almennileg dagsrká hefjist á þessum stöðvum. Sýningarnar eru á einkar hentugum tíma fyrir börnin. Barnastjarnan Silvía Nótt sló í gegn í Júróvisíón í einhverskonar vændiskonu búning og krakkarnir í skólum landsins syngja: ég er Silvía Nótt, og þið haldið með mér. Samtímis þessu kemur upp á yfirborðið holskefla af kynferðisafbrotamálum og afbrigðilegheitum hjá þjóðinni, svo sem eins og furðu há tíðni endaþarmsmaka og munnmaka meðal krakka á grunnskóla aldri.
Aðlaga þarf innflytjendur að evrópskri menningu, og hollensk yfirvöld telja sig vita hver kjarni hennar er.
Meginflokkur: Stjórnmál - almennt | Aukaflokkur: Sindri | Breytt 27.4.2007 kl. 23:18 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004