Leita í fréttum mbl.is

Klikkaðir Kommúnistar

Maður nokkur heitir Battisti. Hann er ítalskur og hefur búið í Frakklandi í 13 ár. Hann hefur viðurværi sitt af því að skrifa sakamálasögur og er afar vel liðinn af hinni vinstrisinnuðu frönsku lista-akademíu. Ítalir hafa krafist framsals Battisti vegna ýmissa blóðugra ofbeldisverka og morða, en án árangurs.

Battisti sat í fangelsi á Ítalíu árið 1981, en meðlimir PAC ( Prolétaires armés pour le communisme), ,,Vopnvæddir öreigar kommúnismanns”, brutust inn í fangelsið og leystu hann úr haldi. Fyrst var hann sendur til Mexíkó, en hann fann á endanum öruggt skjól í vinaríkinu Frakklandi. Mitterand, formaður Sósíalistaflokksins og þáverandi forseti Frakklands brást ekki byltingarsinnum frekar en fyrri daginn. Frakkland hefur hugsað vel um félaga Battisti allar götur síðan, og neitað að framselja hann til ,,auðvaldsins”.

Árið 2004 var hins vegar loksins ákveðið að fullnægja réttlætinu. Battisti á að sæta lífstíðar fangelsisvist fyrir afbort sín. Vinstrisinnaða franska listasnobbið er auðvitað ösku illt. Einnig hin franska stjórnarandstaða, sem er stútfull af veruleikafyrrtum vinstrimönnum. Gömlu byltingarsinnarnir frá ‘68 eru nú fréttastjórar, próffessorar, rektorar og pólitíkusar. Þeir vilja allir bjarga félaga Battisti, baráttumanninum góða. Tilgangurinn helgar meðalið, og kommar eru alltaf friðhelgir. Þung sakarábyrgð skal hins vegar ávalt hvíla á öllum ,,auðvaldsinnum”.
Hannes Hólmsteinn ætti að þakka Guði fyrir að vera ekki franskur.

Sindri Guðjónsson

Hér má sjá mynd af snarklikkuðum frönskum rithöfundum í kröfugöngu fyrir hönd félaga Battisti:

Powered by Hexia

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband