Föstudagur, 4. febrúar 2005
Styrktarsöfnun fyrir New York Times algerlega óþörf
Eins og kunnugt er hafa forsvarsmenn Þjóðarhreyfingarinnar svonefndrar viljað meina að auglýsing sú, sem þeir birtu á dögunum í bandaríska stórblaðinu New York Times þar sem stuðningi Íslands við innrásina í Írak var mótmælt, hafi vakið mikil viðbrögð erlendis. Þess sjást að vísu engin sérstök merki og hefur maður aðallega bara einhverjar innantómar yfirlýsingar forsvarsmanna hreyfingarinnar fyrir því og ýmissa skoðanabræðra þeirra. Áður en auglýsingin var birt sögðu forystumennirnir ennfremur að markmið sitt með auglýsingunni væri m.a. það að hún myndi vekja athygli annarra fjölmiðla í heiminum sem myndu í framhaldinu segja frá henni í fréttum sínum.
Á heimasíðu hreyfingarinnar, sem í augnablikinu telur heila fjóra einstaklinga, er að finna leiðara þar sem reynt er að sýna fram á mikla umfjöllun erlendra fjölmiðla.
Er þar vitnað í Jónas Kristjánsson, fyrrv. ritstjóra, þar sem hann hefur uppi stóryrði mikil um það að auglýsingin hafi svínvirkað og fréttin um hana hafi farið víða um heiminn. Engar heimildir eru þó nefndar þessu til sönnunar frekar en fyrri daginn, en eftir tilvitnunina í Jónas kemur viðbót frá Þjóðarhreyfingunni svokölluðu þar sem fólki er bent á að skoða heimspressuna og fara í því skyni inn á Google-leitarvélina og slá inn: "Icelanders Take Anti Iraq War Campaign to US".
Gott og vel. Ég gerði þetta og jújú, það komu upp all nokkrar síður og þar á meðal fjölmiðlasíður frá ýmsum löndum þó fæstar þeirra geti þó flokkast undir það að vera þekktir fjölmiðlar, ég taldi aðeins um sjö slíka. En það sem er hins vegar hvað áhugaverðast við þetta er að alls staðar er um að ræða sömu fréttina og að hún er ekki rituð af erlendum blaðamanni eða blaðamönnum sem tóku eftir auglýsingu Þjóðarhreyfingarinnar svonefndu í New York Times eins og til var ætlast.
Nei, hún er rituð af ágætum íslenzkum blaðamanni sem starfar á Morgunblaðinu og sem hefur vitanlega ekki þurft að sjá auglýsinguna í bandaríska stórblaðinu til að vita af málinu og fjalla um það.
Þessi frétt hans mun hafa birzt upphaflega hjá Reuters-fréttastofunni og þaðan borizt til einhverra annarra erlendra fjölmiðla (reyndar fá sjónarmið íslenzkra stjórnvalda mun meiri athygli í fréttinni en sjónarmið Þjóðarhreyfingarinnar svonefndrar).
M.ö.o. er ekki að sjá að auglýsingin í New York Times hafi skilað þeim árangri sem til var ætlast, þ.e. að birting hennar í blaðinu myndi hafa það í för með sér að erlendir fjölmiðlamenn tækju sig til og rituðu um málið. Nei, það mun hafa þurft íslenzkan blaðamann til að vekja athygli á málinu á Reuters-fréttastofunni og þá fyrst hefur áhugi einhverra erlendra fjölmiðla vaknað á því að fjalla um málið.
Þannig að það hefði sennilega verið nóg fyrir Þjóðarhreyfinguna svokallaða að kaupa t.d. bara heilsíðuauglýsingar í Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og DV og síðan hefði hinn umræddi íslenzki blaðamaður getað skrifað um málið fyrir Reuters og sagt að stuðningi Íslands við innrásina í Írak hefði verið mótmælt með heilsíðuauglýsingum í öllum stærstu dagblöðum Íslands. Að öllum líkindum hefði sá gjörningur skilað sér í álíka mikilli fjölmiðlaathygli og auglýsingin í New York Times fékk nema hvað hægt hefði verið að spara umtalsverðar fjárhæðir og verja þeim frekar til mannúðarstarfa í Írak í stað þess að styrkja eigendur New York Times.
Hjörtur J. Guðmundsson
Breytt 6.10.2006 kl. 13:19 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004