Sunnudagur, 5. desember 2004
Að löggjafinn hagi sér syndsamlega...
Ein þessara forsendna er sú að ,,löggjafinnhagi sér skynsamlega, eða hafi a.m.k. ætlað sér það.
Nú vill svo til að undanfarin ár hefur hópur Íslendinga í raun gefið sér það að þeir sem farið hafa með löggjafavaldið í landinu hagi sér að jafnaði SYNDsamlega, eða hafi a.m.k. ætlað sér það.
Þetta er eins konar sjálfkrafa afstaða sem sumir hafa haft t.d. gagnvart Davíð Oddssyni. Allar hans gerðir virðast vera skoðaðar í ljósi þess að honum hafi staðið illt eitt til. Þó er mönnum ómögulegt að skyggnast inn í huga hans, og menn geta því ekki vitað hvaða hvatir liggja að baki í raun.
Hversu oft hefur maður ekki heyrt það sagt að Davíð Oddson sé spilltur, hann hafi verið við völd lengi og vald spilli...
Fjölmiðlafrumvarpið var lagt fram til þess eins að Davíð gæti náð sér niður á einkaóvini sínum, Jóni Ásgeiri...
Tekjutenging við maka örorkubótaþega orsakast af mannfyrirlitningu og virðingarleysi Davíðs gagnvart öryrkjum...
Davíð og Halldór studdu innrásina í Írak, til þeiss eins að múta Bandaríkjamönnum til þess að halda herstöðinni í fullum rekstri í Keflavík...
Ríkisstjórnin er við völd til þess eins að tryggja að gráðug stórfyrirtæki geti hagnast á almenningi...
Sala ríkisfyrirtækja er til þess eins að hygla einkavinum Davíðs...
Og svo framvegis...
Málið er að fólk sem gefur sér þessar neikvæðu forsendur fyrirfram,
getur aldrei litið málin hlutlausum augum.
Sjálfstæðismaður nokkur átti tal við vinstrisinnaðan kunningja sinn.
Eftir að sjálfstæðismaðurinn hafði reynt að útskýra einhverja ákvörðun ríkisstjórnarinnar fyrir vinstrimanninum, var honum svarað á þessa leið: ,,Þú gefur þér bara að menn hafi ætlað að reyna að gera eitthvað gott! (Hneyksli) Veistu ekki að ríkisstjórnin er spillt? Davíð er búinn að sitja svo lengi, og valdið spillir!
Svona hugsunarháttur er óþolandi!
Margur telur mig sig.
Sindri Guðjónsson
Breytt 6.10.2006 kl. 13:19 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004