Sunnudagur, 28. nóvember 2004
R-listinn mjólkar borgarbúa
Útsvar íbúa Reykjavíkur hækkar úr 12,7% í 13,03% samkvæmt ákvörðun sem borgarfulltrúar R-listans tóku þann 16. nóvember sl., en hærra má útsvar sveitarfélaga ekki vera lögum samkvæmt. Einnig ákvað R-listinn að fasteignaskattar Reykvíkinga yrðu hækkaðir eins og hitt hafi ekki verið nóg. Segir í fréttatilkynningu R-listans að þessi aukna skattheimta verði einkum notuð til að greiða niður skuldir Reykjavíkurborgar.
Má segja að það sé í sjálfur sér ákveðið þroskamerki hjá borgarfulltrúum R-listans að þeir séu farnir að viðurkenna að skuldsetning Reykjavíkurborgar sé vandamál en hingað til hafa þeir harðneitað því og jafnvel sagt að skuldir borgarinnar væru góðar hvernig sem hægt er að komast að slíkri niðurstöðu. Þeir sem bentu á vandann voru síðan kallaðir lygarar eða eitthvað þaðan af verra af forsvarsmönnum R-listans.
Þann tíma sem R-listinn hefur stjórnað Reykjavíkurborg hafa skuldir borgarinnar margfaldast. Vandamálið er reyndar orðið svo slæmt að forystumenn R-listans sjá sér sífellt minna fært að neita þeirri staðreynd. Þetta kom t.a.m. vel fram þegar fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árið 2004 var sett fram í lok síðasta árs. Skattahækkanirnar nú eru síðan enn ein staðfesting á þessu.
Ef Reykjavíkurborg væri vel rekin gerðu menn væntanlega ráð fyrir því að til aukins kostnaðar kynni að koma á ýmsum sviðum. En það virðist vera lenzka hjá ófáum vinstrimönnum að telja að rétt sé að eyða öllu því fé sem þeir hafi yfir að ráða þegar þeir komast með fingurna í opinberan rekstur. Hver kannast ekki við vinsælt orðalag á vinstrivængnum: vannýttir tekjustofnar? Svo þegar aðstæður koma upp sem kalla óhjákvæmilega á aukin útgjöld er eina ráð þeirra að hækka álögur á skattgreiðendur. Eitthvað sem ætti alltaf að forðast eins og heitan eldinn.
Hjörtur J. Guðmundsson
Breytt 6.10.2006 kl. 13:19 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004