Miðvikudagur, 27. apríl 2005
Heimsvaldastefna vesturveldanna – helsta vopnið gegn þrælahaldi
Það var ekki fyrr en á 18.öld sem háar raddir fóru að heyrast þess efnis að þrælahald væri rangt, og að það bæri að stöðva. Menn um allan heim, af öllum mögulegum kynstöfnum, seldu og keyptu sér þræla á frjálsum mörkuðum. Það var hinsvegur á vesturlöndum á seinni hluta 18. aldar sem að menn tóku sig til og hófu baráttu gegn þessu svívirðilega óréttlæti meðan fólk annarsstaðar í veröldinni lét þetta vandamál sig ekki varða.
Bókin Bury the Chain eftir Adam Hochschild segir frá fyrstu samtökunum sem stofnuð voru til að berjast gegn þrælahaldi. Þau voru stofnuð árið 1787 í London, og stofnfélagar voru 12, þ.á.m. auðjöfrar og trúarleiðtogar. Bókin lýsir því hvernig þrælahaldi var tekið sem sjálfsögðum hlut um alla veröld á þessum tíma. Stjórnmálamenn, heimspekingar, trúarleiðtogar og hugsuðir um heim allan virtust allir sætta sig við þetta ástand, og fáir sem engir tjáðu sig um það.
Hið 12 manna félag gegn þrælahaldi hóf að kynna málstað sinn fyrir Bretum af alefli. Þeirra helsta markmið var að fá menn til að hugsa um þetta mál, og töldu að það hlyti að duga til að sannfæra almenning um ranglætið sem í þrælahaldi fælist. Með þessum hætti ætluðu þeir að snúa breska heimsveldinu gegn þrælahaldi. Þessi áform virstust langsótt, baráttan var löng, og andstaðan við félagið oft hatrömm, en á endanum hafði málstaður þeirra betur og almenningur og stjórnvöld sannfærðust um óréttlæti þrældómsins. Breska heimsveldið bannaði því þrælahald og tók að sér að útrýma því um víða veröld. Þeir silgdu víða um höf og fóru um borð í skip annarra þjóða til að leita að þrælum. Þegar þeir fundust voru þeir teknir með valdi af þrælasölunum og þeim gefið frelsi. Bretar voru í heila öld ,,alheimslögreglaná þessu sviði. Það var vestræn heimsveldastefna sem stöðvaði þrælahald um heim allan, eftir langan barning og ásakanir um yfirgang af hálfu ýmissa þjóða frá öllum heimshornum sem töldu að ekkert væri rangt við þrælahald. Sem betur fer þá áttu Bretar fleiri byssur en aðrar þjóðir og því gátu þeir nánast útrýmt þrælahaldi bæði heimafyrir og annarsstaðar. Með tímanum breyddust hugmyndir vesturveldanna um ranglæti þrælahaldsins um víða veröld.
Það er í mikilli andstöðu við heimsmynd vinstrisinnaðra hugsaða og menntamanna að heimsveldisstefna vesturveldanna leiði nokkuð gott af sér. Hinir frjálslyndu kvimyndagerðamenn í Hoolywood eru ekki líklegir til að gera bíómynd um hetjulega baráttu Breta gegn þrælahaldi.
Áður en að breska heimsveldið sneri sér gegn þrælahaldi hafði þrælasala verið drjúg tekjulind fyrir breska hagkefrið. Bretinn John Stuart Mill sem lifði á þessum árum sagði: ,,Bretar hafa í hálfa öld eytt því sem samsvarar þjóðarframleiðslu margra ríkja í það eitt að loka strönd Afríku án þess að hafa af því nokkra einustu hagsmuni og fyrir málstað sem skaðar þá fjárhagslega.
Já, þessu eigingjörnu vesturveldi!
Ef að þrælahald er ekki rangt, er ekkert rangt.
- Abraham Lincoln
Sindri Guðjónsson
Breytt 6.10.2006 kl. 13:19 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004