Föstudagur, 8. september 2006
Sjálfstæðisflokkurinn
Ég var einu sinni mjög hrifinn af Sjálfstæðisflokknum. Ég er það ekki lengur. Ég hef margt við flokkinn að athuga. Mjög margt.
Hins vegar ber flokkurinn höfuð og herðar yfir aðra flokka sem að bjóða munu fram í næstkomandi kosningum, nema að einhver áður óþekktur flokkur verði til með skjótum hætti í tæka tíð.
Þeir sem hyggjast kjósa einhvern annan flokk en Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum ættu að spyrja sig eftirfarandi spurninga: Ertu tilbúinn til að sjá eignarskattinn endurvakinn? Hvað með hátekjuskattinn? Tekjuskattur var lækkaður um 3% á síðasta kjörtímabili, viltu sjá þá lækkun ganga til baka? Viltu að erfðarfjárskatturinn hækki aftur? Svona mætti lengi telja
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lækkað skatta á fyrirtæki úr tæpum 50% niður í tæp 25% í sinni valdatíð. Rekur þú kanski lítið fyrirtæki? Hvernig fyndist þér að borga 50% skattinn?
Ef að Sjálfstæðisflokkurinn myndar ekki meirihluta eftir næstu kosningar verður hér vinstristjórn. Það er ekkert flóknara. Vinstristjórnir einkennast af samdrætti, atvinnuleysi, háum sköttum og auknu skrifræði og leiðindum, sem óhjákvæmilega fylgir auknum verkefnum hins opinbera. Vinstrimenn vilja veita ríkinu endalaus verkefni á öllum mögulegum sviðum.
Skárra er að glíma við þennslu en kreppu.
Sindri Guðjónsson
sindri79(a)gmail.com
Meginflokkur: Stjórnmál - almennt | Aukaflokkur: Sindri | Breytt 27.4.2007 kl. 22:13 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004