Miðvikudagur, 1. mars 2006
Nasistinn Hugo Chavez
Konan mín er þeirrar ,,gæfu aðnjótandi að fá sent til sín blað BSRB. Ég man eftir að hafa lesið þar grein aftarlega í blaðinu um vinstri múgsefjunarsamkomu í landinu rauða Venúsúela þar sem einræðisherrann Chavez var varinn hægri vinstri, eða aðallega vinstri. Það kemur nú kannski ekkert á óvart ef ritstjórn blaðs BSRB er í takt við formann sinn sem lengi hefur verið hrifinn af roðanum í austri (og nú kannski í suðri líka).
Chavez og góðvinur hans Castro, sem bannar þegnum sínum hér um bil allt milli himins og jarðar, eru miklir dýrlingar meðal róttækra vinstrimanna hérlendis. Þeir á Múrnum eru ekki hrifnir af hinum kristilega hægri væng repúblikanaflokksins. Einnig fyrirlýta þeir alla kynþáttafordóma. Róttækir vinstrimenn eru ekki trúaröfgamenn og ekki rasistar, annað en íhaldssamir far-right fanatíkusar.
En hlustum aðeins á Hugo Chavez:
,,Afkomendur þeirra sem krossfestu Krist (gyðingar) hafa hrifsað til sín auð jarðarinnar, minnihluti hefur tekið sér eignarrétt yfir gulli heimsins, og silvrinu, og jarðefnunum, vatninu, góðu jörðunum, olíunni, auðæfunum, og þeir hafa látið auðinn í hendur fárra útvaldra.
Já, þetta er allt þessum gyðingunum að kenna! Það er megin inntak ræðu sem Huga Chavez flutti á aðfangadag jóla.
Svona málflutningur er í anda Hitlers, KKK og fleiri. Ræða Chavez hefði sómað sér vel í málgangi nasista, í dagblöðum þriðjaríkisins, og annarsstaðar þar sem gyðingafordómar hafa blómstrað.
Chavez er greinilega gagntekinn af gyðingahatri, og beitir fyrir sig trúarlegum tilfinningarökum. Hvað ætli hentistefnu málgagnið Múrinn segi um þetta? Líklega ekki neitt.
Meginflokkur: Annað | Aukaflokkar: Sindri, Vinstrimenn á villigötum | Breytt 27.4.2007 kl. 23:23 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004