Mánudagur, 12. september 2005
Mánudagspósturinn 12. september 2005
Það er fagnaðarefni hversu vel tókst til við að selja Símann. Gott verð fékkst fyrir hann og ekki er síður mikið fagnaðarefni að til standi að verja þeim fjármunum á heildina litið í mjög þörf og góð verkefni í þjóðfélaginu. Um helmingur verður notaður strax í að greiða niður erlendar skuldir íslenzka ríkisins sem mun í raun þýða að það verður skuldlaust við útlönd um næstu áramót. Þar með verður eitt helzta baráttumál ungra sjálfstæðismanna í höfn. Afgangurinn verður geymdur í Seðlabankanum og síðan nýttur til ýmissa verkefna á árunum 2007-2012 ef aðstæður í efnahagslífinu verða réttar. En eins og kunnugt er eru þær það ekki eins og staðan er í dag.
Ófáir stjórnarandstæðingar höfðu uppi stór orð um að með sölu Símans hefði bezta mjólkurkúin verið seld og þar fram eftir götunum. Síminn hefði verið að gefa svo mikið af sér á ári í arð til ríkisins. Niðurstaðan er hins vegar sú að með niðurgreiðsla erlendra skulda ríkisins sparast vaxtakostnaður sem nemur sömu upphæð á ári og það sem Síminn hefur verið að gefa af sér í arð til ríkisins á undanförnum árum, eða um 2 milljarðar króna. Til viðbótar mun sú fjárhæð sem verður geymd fyrst í stað í Seðlabankanum skila ríkinu annarri eins upphæð í vexti.
Persónulega er ég mjög ánægður með er það framlag sem rennur til Landhelgisgæzlunnar sem fyrir löngu var meira en tímabært. Sem kunnugt er stendur til að kaupa nýja flugvél fyrir gæzluna árið 2007 og nýtt varðskip árið 2008. Núverandi flugvél hennar er komin til ára sinna og sama er í raun að segja um varðskipin. Hins vegar hefur varðskipið Ægir nú verið algerlega endurnýjaður og til stendur að gera það sama við varðskipið Tý. Þannig að þau munu án efa halda áfram þjónustu sinni við Íslendinga um ókomin ár enda um afbragðsskip að ræða.
Svo er bara spurningin hvernig nýtt varðskip mun líta út. Persónulega hef ég alltaf verið talsvert hrifinn af dönsku varðskipunum af Thetis-gerð sem hafa verið tíðir gestir í Reykjavíkurhöfn. Þessi skip eru þó sennilega talsvert stærri en hugmyndin er að nýtt íslenzkt varðskip verði. Þau munu engu að síður vera sérstaklega hönnuð með eftirlit við Grænland í huga og til að geta siglt í ís svo dæmi sé tekið. Læt hér fylgja með nokkrar myndir af þessum skipum - þó það sé kannski óþarfi fyrir reykvíska lesendur vefritsins þar sem flestir Reykvíkingar hafa án efa einhvern tímann barið þau augum.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturg(a)hi.is
Breytt 6.10.2006 kl. 13:19 | Facebook
Nýjustu færslur
- Íhald.is fer í frí
- Get a life
- Batnandi mönnum er bezt að lifa
- Bretum ferst að saka okkur um að skaða lífríki Norður-Atlants...
- Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru
- Ég var hleraður hjá Kaupfélagi Húnvetninga!
- Bölvuð auðmannastéttin
- Örvænting íslenzkra krata tekur á sig ýmsar myndir
- Fullyrt um vilja þjóðarinnar og ófæddra Íslendinga
- Hvað er maðurinn að tala um?
- Vinstrimenn hækka skatta í Noregi - "Surprise! Surprise!"
- Hringlandaháttur allra flokka
Eldri færslur
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Ágúst 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Apríl 2005
- Mars 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
- Nóvember 2004
- Október 2004