Leita í fréttum mbl.is

Jón Baldvin: Úlfur í sauðsgæru

Jón Baldvin Hannibalsson hafði í hyggju að spila sjálfan sig sem fórnarlamb símahlerana, en þess í stað hefur nú verið sýnt fram á með áreiðanlegum heimildum að hann beitti sér sjálfur fyrir því að njósnað væri um aðra og þá sérstaklega samráðherra sinn í ríkisstjórn, Svavar Gestsson. Símahleranirnar eiga að hafa átt sér stað fyrir meira en áratug síðan og af einhverjum ástæðum sá Jón ekki ástæðu til að vekja athygli á þeim fyrr en akkúrat núna rétt fyrir kosningar þegar hann hefur verið orðaður við framboð fyrir Samfylkinguna.

Jón hefur ýjað að því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi beitt sér fyrir þessum meintu hlerunum, en nú segist hann hafa talið að Bandaríkjamenn hafi staðið fyrir þeim. Hvers vegna lét hann þá ekki ríkisstjórnina vita af þessu? Kannski voru símar fleiri ráðherra hleraðir? Hélt Jón að þetta væri bara eitthvað einkamál hans? Að hann einn væri hleraður? Líklegast er þó að þessar hleranir séu aðeins til í hausnum á Jóni Baldvini og lærisveins hans Árna Páls Árnasonar, enda hafa þeir engar sönnur fært á þessar sögur sínar. Einu heimildirnar eru einhverjir ónafngreindir menn sem enginn veit hverjir eru.

Merkilegt annars að Jón skuli fyrst saka Þór Whitehead um að hafa tekið þátt í einhverju samsæri með Birni Bjarnasyni, um að undirbúa jarðveginn fyrir íslenzka leyniþjónustu, með ritgerð sinni sem birtist í tímaritinu Þjóðmálum, einmitt núna þegar varpað er ljósi á þátt hans í að láta njósna um Svavar Gestsson og fleiri. Það er hins vegar heill mánuður síðan tímaritið var gefið út.

Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturg(a)hi.is


mbl.is Þór var að undirbúa farveginn fyrir frumvarp um öryggisgæslu, segir Jón Baldvin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband